Mannfjöldi tekur þátt í kærleiksgöngu gegn kynþáttafordómum. Fólk streymdi niður Skólavörðustíg. Mörg þúsund manns tók þátt í göngunni.
Besti flokkurinn hvatti til göngunnar, í kjölfar frétta um ofsóknir gegn kúbverskum feðgum sem hér búa.
Gengið var frá Hallgrímskirkju um Skólavörðustíg, Laugaveg, Austurstræti og endað á Ingólfstorgi þar sem haldnir eru tónleikar af þessu tilefni.