Sara Halldórsdóttir varð í dag Norðurlandameistari í IPO vinnuhundaþjálfun. Keppnin fór fram í Danmörku.
Þetta er ekki fyrsti titillinn sem Sara vinnur, en nýverið hreppti hún sænskan meistaratitil í slíkri þjálfun og vann sér þar með sæti í sænska landsliðinu.
Sara er búsett í Svíþjóð, þar sem hún ræktar og þjálfar hunda.
Nánari umfjöllun hér.