Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins hafa óskað eftir því við verkalýðshreyfinguna að stöðugleikasáttmálinn verði framlengdur. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Haft er eftir Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, að það sé ekki mögulegt fyrr en ljóst sé hvað stjórnvöld ætlist fyrir.
Á vef RÚV segir að þetta hafi verið ákveðið á fundi formanna 70 verkalýðsfélaga fyrir
helgi. Haft er eftir Guðmundi að flestir hafi virst sammála um að nauðsynlegt
væri að standa saman en stjórnvöld hafi ekki staðið við síðustu
þjóðarsátt.