Síðdegis í gær varð harður árekstur á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Velli í Ölfusi. Bifreið var ekið aftan á kyrrstæða bifreið sem hafði stöðvað á veginum vegna hrossa sem var verið að reka yfir veginn.
Ökumenn og farþegar bifreiðanna hlutu minni háttar áverka. Bæði ökutækin voru óökufær eftir áreksturinn, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi.