Reykkofi brann til kaldra kola við bæinn Arnarbæli í Grímsnesi í dag.
Kofinn var torfhlaðið timburhús og var hann brunninn þegar slökkvilið á Selfossi kom á vettvang. Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir klukkan fjögur í dag.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ekki vitað um eldsupptök en þar var verið að reykja lax eða annað fiskmeti þegar eldurinn kviknaði.