Bókunarþjónusta í Leifsstöð

Upplýsingaþjónustan í komusal Leifsstöðvar hefur fengið betra rými.
Upplýsingaþjónustan í komusal Leifsstöðvar hefur fengið betra rými. mbl.is/Reynis Sveinsson

Nýr upplýsingabás Markaðsstofu Suðurnesja var opnaður formlega í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í dag. Það verður boðið upp á bókunarþjónustu.

Er aðstaðan nú skipulögð þannig að hægt verði að veita fjölbreyttari þjónustu við flugfarþega en hingað til. Aðstaðan er rúmbetri, með upplýsingarekkum fyrir hvern landshluta og fallegar ljósmyndir prýða veggi.

Boðið verður uppá bókunarþjónustu í upplýsingamiðstöðinni og hefur Markaðstofan samið við ITA hf. um að annast reksturinn í Leifsstöð.

Markaðsstofan vonast til að breytingarnar auðveldi gestum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að skipuleggja ferðir sínar um landið og veiti þeim meira öryggi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert