Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun fjalla um þriðju endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands næstkomandi miðvikudag 29. september. Einnig verður fjallað um árlega skýrslu, sem sérfræðingar sjóðsins hafa gert um íslensk efnahagsmál.
Þetta kemur fram á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Áður hafði efnahags- og viðskiptaráðuneytið tilkynnt, að samkomulag hefði náðst um að þriðja endurskoðunin færi fram 29. september og íslensk stjórnvöld hafi sent sjóðnum endurnýjaða viljayfirlýsingu um samstarf.