Setur sér ný markmið

Stefán Sölvi Pétursson í steinalyftunni í dag en þar varð …
Stefán Sölvi Pétursson í steinalyftunni í dag en þar varð hann í 2. sæti.

„Það er gaman að ná markmiðum sínum. Nú er að fara heim, æfa betur og setja sér ný markmið,“ segir Stefán Sölvi Pétursson aflraunamaður sem náði 4. sæti í keppninni Sterkasti maður heims.

Stefán Sölvi var sjöundi eftir fyrri keppnisdag úrslita en náði sér upp á seinni deginum og krækti í fjórða sætið.

Er þetta í fyrsta skipti sem Stefán Sölvi kemst í úrslit í keppninni Sterkasti maður heims og raunar eru ellefu ár síðan Íslendingur hefur ná inn í úrslitin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert