Neytendastofa hefur lagt 50 þúsund króna stjórnvaldssekt á veitingastaðinn Ruby Tuesday fyrir að fara ekki að tilmælum Neytendastofu um verðmerkingar.
Samkvæmt verðmerkingarreglum ber veitingahúsum að hafa matseðil með
verði við inngöngudyr sínar svo neytendur geti kynnt sér vöruúrval og
verð áður en þeim er vísað til borðs.
Í lok aprílmánaðar gerði Neytendastofa athugasemdir við Ruby Tuesday þar sem matseðill með verði var ekki við inngöngudyr og fór stofnunin fram á að úr því yrði bætt. Í júní var skoðuninni fylgt eftir og kom í ljós að ekki hafði verið farið að tilmælunum. Því taldi stofnunin ástæðu til að leggja stjórnvaldssekt á félagið.