Forsetinn heiðraður af rússneskum landfræðingum

Ólafur Ragnar tekur við viðurkenningunni úr hendi Pútín
Ólafur Ragnar tekur við viðurkenningunni úr hendi Pútín Reuters

Forseti Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, var í gær gerður að heiðursfélaga í Rússneska landfræðifélaginu á alþjóðaþingi um norðurslóðir sem haldið er í Moskvu. Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Pútín, afhenti forseta heiðursskjal og sérstakt innsigli úr bronsi þessu til staðfestingar.

Í ávarpi sem formaður Rússneska landfræðifélagsins, Sergei Shoigu flutti við þetta tilefni vísaði hann til margþætts framlags forseta Íslands til málefna Norðurslóða, en forsetinn hefði um árabil verið virkur þátttakandi í samvinnu og samræðum um málefni Norðurslóða og stuðlað að auknum tengslum rannsóknarstofnana, háskóla og fræðimanna, samkvæmt fréttatilkynningu frá forsetaembættinu.

Ræddi við ýmsa fjölmiðla

„Í heimsókn forseta til Moskvu, sem lauk í gærkvöldi, átti hann viðtöl við ýmsa fjölmiðla og svaraði fyrirspurnum á fjölmennum blaðamanna-fundi. Forseti var í sérstökum viðtalsþætti í rússneska fréttasjónvarpinu RIA Novosti og einnig í alþjóðlegu rússnesku sjónvarpsstöðinni Russia Today auk þess sem hann ræddi sérstaklega við aðra fréttamiðla, þar á meðal fréttavef Bloomberg,"  segir ennfremur í tilkynningu.

Ólafur Ragnar Grímsson og Vladimír Pútín.
Ólafur Ragnar Grímsson og Vladimír Pútín. Reuters
Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, Albert fursti af Mónakó og Ólafur …
Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, Albert fursti af Mónakó og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands Reuters
Ólafur Ragnar Grímsson, Albert fursti af Mónakó, Vladimír Pútín og …
Ólafur Ragnar Grímsson, Albert fursti af Mónakó, Vladimír Pútín og orkumálaráðherra Rússlands, Sergei Shoigu Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert