Bjargað af eyri í Núpsvötnum

Núpsvötn.
Núpsvötn.

Gríðarlegir vatnavextir hafa verið í ám í Rangárþingi eystra og í Vestur- Skaftafellssýslu. Björgunarsveitarmenn frá Kirkjubæjarklaustri björguðu í kvöld þremur mönnum af eyri í Núpsvötnum með því að koma til þeirra línu og draga á þurrt á gúmmíbáti.

Samkvæmt upplýsingum frá Björgunarsveitinni Kyndli á Kirkjubæjarklaustri tókst einum björgunarsveitarmanni að komast til mannanna á eyrinni með línu. Björgunarbátur var síðan dreginn upp á eyrina og aftur í land með mennina fjóra. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli voru mennirnir í veiðiferð og festust í bíl á eyri í Núpsvötnum. Skilja varð bílinn eftir í vatninu við eyrina en reyna átti í nótt að ná honum í land með aðstoð jarðýtu enda var byrjað að grafa undan honum.

Lögreglan segir, að mikið hafi rignt á Suður- og Suðausturlandi í dag og er spáð áframhaldandi rigningu í nótt og morgun. Undir Eyjafjöllum hefur vaxið mikið í ám og brýtur undir brúargólfið á Svaðbælisá.  Biður lögreglan vegfarendur um að hafa varann á flæði vatnið upp á veginn.

Þá vill lögreglan hvetja þá, sem eru á hálendinu, að gæta
að ánum þegar þeir fara til byggða á morgun og þá, sem ætla sér í slíkar ferðir, að fresta þeim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert