Europol rannsakar Kaupþing

Evrópska lögreglustofnunin Europol hefur hafið rannsókn á ýmsum þáttum í starfsemi Kaupþings fyrir bankahrunið, að því er kom fram í fréttum Stöðvar 2.

Sagði fréttastofan að rannsókn Europol beindist meðal annars að því, hvort fjárhagslegar upplýsingar í skuldabréfaútgáfum bankans hafi verið rangar eða villandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert