Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, viðskiptafræðingur, var í dag kjörin formaður Borgarahreyfingarinnar á aðalfundi samtakanna. Ingifríður Ragna Skúladóttir var kjörin varaformaður.
Önnur í stjórn eru Guðmundur Andri Skúlason, Guðmundur Karl Þorleifsson og Þorsteinn Guðmundsson.