Samfylkingarfélagið í Kópavogi stendur þessa stundina fyrir fundi í Hamraborg með fulltrúum flokksins í þingmannanefndinni, þeim Oddnýju Harðardóttur og Magnúsi Orra Schram. Munu þau kynna skýrslu nefndarinnar og svara fyrirspurnum fundargesta.
Athygli vakti að á heimasíðu flokksins var auglýst að fundurinn væri opinn öllum en fjölmiðlamönnum var hins vegar vísað frá fundinum.