Atkvæðagreiðsla er hafin á Alþingi um þingsályktunartillögur þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Greidd eru atkvæði um tillögu sem öll nefndin stendur að og síðan um tvær tillögur þar sem lagt er til að höfðað verði mál á hendur fyrrverandi ráðherrum fyrir landsdómi.
Hægt er að fylgjast með útsendingu frá Alþingi á mbl.is. Þá verður einnig fylgst með atkvæðagreiðslunni í fréttum og með Twitter-færslum.