Auglýst eftir ráðuneytisstjóra velferðarráðuneytis

Guðbjartur Hannesson er ráðherra velferðarmála
Guðbjartur Hannesson er ráðherra velferðarmála mbl.is/Ómar Óskarsson

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um stöðu ráðuneytisstjóra velferðarráðuneytis en það verður til við sameiningu heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins hinn 1. janúar 2011.

Helstu verkefni nýs velferðarráðuneytis varða almannatryggingar, barnavernd, félagslega aðstoð, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilbrigðisþjónustu á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum, heilsugæslu, húsnæðismál, jafnréttismál, lyfjamál, lýðheilsumál, málefni aldraðra, fatlaðra, fjölskyldna og innflytjenda, skuldamál heimilanna og vinnumarkaðsmál. Þá heyra undir ráðuneytið stofnanir velferðarráðuneytisins og undirbúningur og gerð lagafrumvarpa og reglugerða í fyrrgreindum málaflokkum.

Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt þekkingu og reynslu á verkefnasviði hins nýja velferðarráðuneytis. Áhersla er lögð á stjórnunarreynslu ásamt færni í mannlegum samskiptum. Jafnframt er gerð krafa um góða tungumálakunnáttu auk hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Einnig er mikilvægt að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.

Skipað verður í starfið hið fyrsta og mun ráðuneytisstjórinn taka við embætti 1. janúar 2011. Fram til þess dags er nýtt ráðuneyti hefur starfsemi mun nýr ráðuneytisstjóri vinna að sameiningu ráðuneytanna með verkefnisstjórn, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert