Bolungarvíkurgöng, sem opnuð voru um helgina, lokuðust a.m.k. í tvígang í gær, þegar kviknaði á lokunarljósum og slár fóru niður. Skoðunarstofa fór yfir rafmagnsbúnaðinn í göngunum síðdegis í gær.
Samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni virðist sem einn NO nemi, sem mælir magn
köfnunarefnisoxíði, sé bilaður eða gallaður. Neminn sendi þær
upplýsingar að of mikil mengun væri í göngunum og því ætti að loka þeim.
Jafnframt voru sendar upplýsingar til blásara um að fara í gang
og loftræsa göngin, en vegna einhvers konar vanstillingar sló út
rafmagni. „Þetta eru vonandi byrjunarörðugleikar, en í svona sjálfvirku
viðvörunarkerfi er alltaf hætta á fölskum boðum. Vegfarendur verða samt
að taka boðin alvarlega. Vegagerðarmenn munu reyna að leiðrétta slíkt
eins fljótt og mögulegt er,“ segir Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði.