Stjórn Frjálslynda flokksins gerir þá kröfu að þing verði rofið og boðað til kosninga eins fljótt og verða má. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórnin hefur sent frá sér. Frjálslyndi flokkurinn náði engum manni inn á þing í síðustu Alþingiskosningum.
„Þetta er nauðsynlegt vegna þess að:
Niðurstöður atkvæðagreiðslu gærdagsins varðandi Landsdóm sýndu og sönnuðu að
núverandi þingmenn eru ekki í stakk búnir til að takast á við það verkefni að
skapa sátt við almenning í landinu.
Núverandi Alþingi sýndi og sannaði að pólitískar flokkslínur skipta meira máli
en hagsmunir almennings og að enginn vilji er til að taka á pólitískri
samspillingu.
Núverandi Alþingi sýndi engan vilja til þessa að gera upp fortíðina og draga
til ábyrgðar þá sem raunverulega hafa valdið þjóðinni ómældu tjóni sem
almenningur ber nú skaðann af með skertum lífskjörum um ókomna framtíð," segir í tilkynningu frá frjálslyndum.