Mun eitra stjórnmálalífið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Frikki

Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir seg­ir ákvörðunin um að draga Geir Haar­de fyr­ir lands­dóm muni eitra stjórn­mála­lífið. „Ég ótt­ast að þetta hafi slæm áhrif á stjórn­mála­lífið og sam­starf stjórn­mála­manna á Alþingi sem er nú ekki beysið fyr­ir," seg­ir hún. „Þar er hver hend­in upp á móti ann­arri og átök eig­in­lega hvert sem litið er.

 Ég held að þetta eigi eft­ir að auka enn á þenn­an vanda. Það er svo mik­il­vægt að menn reyni ein­hvern veg­inn að ná sam­an um lausn á þeim vanda­mál­um sem við stönd­um and­spæn­is."

Nánd­in á þingi geri málið enn erfiðara en ella. ,,Þess vegna verður sárs­auk­inn miklu meiri þegar ákæru­vald­inu er beitt í þessu litla, 63 manna sam­fé­lagi."

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert