Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar verður mótmælt við Alþingishúsið í dag þegar þing kemur saman eftir hádegi. Sumir hyggjast sofa í svefnpoka á Austurvelli í nótt.
Guðlaug Guðleifsdóttir, sem er sextug, var mætt með svefnpoka og teppi. „Ég ætla ekki að láta bjóða mér meira, það er komið nóg,“ sagði hún.