Nokkur tjöld eru enn í miðborginni en að sögn lögreglunnar er verið að biðja tjaldbúanna að taka tjöldin saman. Mótmælin í nótt fóru friðsamlega fram en aftur hefur verið boðað til mótmælastöðu við Alþingishúsið þegar Alþingi verður sett klukkan 13:30 í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum þá fengu tjaldbúarnir þrjátíu mínútur til þess að taka tjöldin saman og var það gert.