Enginn með réttar tölur

 Enginn var með réttar tölur í lottóinu í kvöld og færist vinningsupphæðin, tæplega 25,7 milljónir yfir á næsta úrdrátt. Lottótölurnar voru 1 - 10 - 27 - 33 - 36. Bónustalan var 7.

Fjórir fengu bónusvinning, 102.400 kr. hver. Miðarnir voru seldir í Shell við Suðurströnd á Seltjarnarnesi, Hagkaupum við Furuvelli á Akureyri, Vikivaka á Laugavegi í Reykjavík og Hobbitanum í Ólafsvík.













 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert