Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar nú eftir aðstoð almennings varðandi leitina af Andrési Tómassyni og bifreið hans LZ-195.
Engar upplýsingar hafa komið fram um hvarf hans og Landsbjörg mun hefja formlega leit að Andresi á morgun. Allar upplýsingar eru vel þegnar í síma 444-1000.
Síðast sást til Andrésar fyrir rúmri viku. Hann er 41 árs, hávaxinn og dökkhærður. Bíllinn er af gerðinni Suzuki Grand Vitara, árgerð 2003 og ljósbrún að lit.