Minnsta umferð í september síðan 2005

Það dregur úr umferð.
Það dregur úr umferð. Ómar Óskarsson

Umferðin í nýliðnum septembermánuði var tæplega fjórum prósentum minni en í sama mánuði fyrir ári síðan. Ekki hefur verið ekið minna á 16 talningarstöðum Vegagerðarinnar á Hringveginum síðan árið 2005.  

Í frétt frá Vegagerðinni segir að frá áramótum hafi umferðin á þessum talningastöðum dregist sama um nærri fimm prósent. Umferðin dregst alls staða saman, mest á Suðurlandi eða um nærri níu prósent frá árinu 2009.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert