Danska blaðið Jyllands-Posten fjallar um Ísland á vef sínum um helgina undir fyrirsögninni: Reykjavík: svalari en nokkru sinni áður.
Segist blaðið ekki mæla með því, að ferðamenn fari til Íslands til að spara peninga heldur njóta þess sem þar er í boði enda sé mikið úrval af kaffihúsum, börum og veitingahúsum, sem veki hrifningu hjá þeim sem heimsækja Reykjavík.