Efni í eggjunum sem grýtt var í Alþingishúsið í gærkvöldi fer illa með grjótið í veggjum hússins og dyrakarma, að sögn þingvarða. Nóttin verður nýtt til að hreinsa upp mikið rusl við þinghúsið.
Ljóst má vera að talsverður kostnaður hlýst af því að hreinsa þinghúsið.
Tækjabúnað þarf til en beita þurfti háþrýstihreinsun við að ná eggjahvítunni af veggjum þinghússins á föstudagskvöld eftir mótmælin við þingsetninguna fyrr um daginn.
Alls kyns drasli, s.s. klósettrúllum og drykkjarumbúðum, og matvælum var grýtt í þinghúsið, svo miklu að öll gangstéttin var þakin þegar mest var.