Harma aðför að búsetu í Þingeyjarsýslu

Höfnin í Húsavík.
Höfnin í Húsavík. mbl.is/GSH

Sjálfstæðisfélögin í Norðurþingi harma aðför ríkisvaldsins að heilbrigðisþjónustu og þar með búsetu í allri Þingeyjarsýslu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem þau hafa sent frá sér.

„Með fyrirhuguðum niðurskurði í fjárveitingu til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga hefur ríkisvaldið varpað sprengju á grunnstoðir samfélagsins.  Auk þess að skerða aðgang íbúa að góðri heilbrigðisþjónustu hjá stofnun sem hefur alla tíð verið til fyrirmyndar á sínu sviði, er lífi og öryggi íbúa á svæðinu ógnað. 

Hátt í 70 starfsmenn munu missa vinnuna verði niðurskurðurinn að veruleika. Það jafngildir áhrifum þeim sem lokun Landspítalans hefði á höfuðborgarsvæðið, eða uppsögnum um 3.900 manns. Við teljum fyrirhugaðan niðurskurð ólýðandi aðför að Þingeysku samfélagi og skorum á þingmenn og ráðherra að standa vörð um Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þannig að hún megi áfram verða ein af máttarstoðum samfélagsins."
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert