Í síðasta mánuði lagði tollgæslan hald á þrjár lifandi kóngulær af Tarantúluætt en auk þess fundust tveir Emperial sporðdrekar í farangri hjá farþega sem átti leið um flugvöllinn. Í framhaldi var gerð líkamsleit á viðkomandi og fundust þá fjórir snákar innanklæða hjá honum. Dýrin voru haldlögð og farið var með þau samdægurs til förgunar að Keldum.
Innflutningur á skriðdýrum til Íslands er bannaður. Bannið er til komið vegna alvarlegra sjúkdómstilfella í fólki af völdum salmonellasmits sem rekja má með ótvíræðum hætti til þessara gæludýra, samkvæmt vef tollgæslunnar