Aðild felld niður að erfðamáli

Bobby Fischer.
Bobby Fischer. mbl.is/Sverrir

Staðfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að aðild Marilyn Felonia Young að máli vegna arfs eftir Bobby Fischer hefur verið felld niður. Young sagðist hafa eignast dóttur með Fischer en DNA-rannsóknir í haust leiddu í ljós að svo var ekki.

Miyoko Watai, sem segist hafa gifst Fischer í Japan árið 2006, og þeir Alexander Gary og Nicholas William Targ, bandarískir systursynir Fischers, gera áfram tilkall til arfs eftir hann.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert