Boða formenn flokka á fund í fyrramálið

Bjarni Benediktsson á Alþingi í
Bjarni Benediktsson á Alþingi í mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að í dag kl. 15.00 hafi borist  fundarboð vegna fundar í fyrramálið þar sem fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar hyggjast ræða skuldavanda heimilanna.
 
„Þrír af þessum fimm ráðherrum  héldu  blaðamannafund 17 mars sl. í Þjóðmenningarhúsinu og fullyrtu að ríkisstjórnin væri  búin að ná utan um skuldavanda heimilanna. Frekari aðgerða væri ekki þörf.
 
Þess er nú freistað, eftir að mál heimilanna  eru komin í óefni vegna mistaka ríkisstjórnarinnar, að fá stjórnarandstöðuna til að hlaupa undir bagga.
 
En samstarf við aðra flokka gengur ekki þannig fyrir sig að ríkisstjórnin velji úr þau mál sem hún er komin í mestar ógöngur með, óski eftir því að aðrir komi þeim til bjargar og kalli það samráð.
 
Ríkisstjórnin hefur ranga stefnu i efnahagsmálum, s.s. um skattastefnu, fjárfestingu og atvinnuuppbyggingu og verði haldið áfram á sömu braut mun það á endanum valda  enn frekari áföllum fyrir heimilin í landinu. 
 
Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki þátt í samstarfi við ríkisstjórn sem er á rangri braut.  Tillögur um lausn á vanda heimilanna eru fyrir löngu fram komnar á þinginu. Á þeim vettvangi mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki láta sitt eftir liggja í hagsmunagæslu fyrir heimilin.
 
Þjóðin þarf ekki samstarf flokka um einstök mál sem ríkisstjórnin hefur reynst ófær um að leysa. Þjóðin þarf nýja ríkisstjórn sem starfar á grundvelli endurreisnarstefnu sem gefur fólki og fyrirtækjum von um bjartari framtíð," segir í fréttatilkynningu frá Bjarna. 
 
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert