Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Besta flokksins. Mun hún jafnframt gegna stöðu framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Besta flokksins og varaformennsku í flokknum.
Heiða Kristín hefur undanfarna mánuði sinnt starfi aðstoðarmanns borgarstjóra en við því starfi mun taka S. Björn Blöndal, sem hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra Besta flokksins.