Maðurinn á batavegi

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Maðurinn sem varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í dag er á batavegi. Maðurinn fékk höfuðáverka en þeir eru ekki alvarlegir, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Manninum líður vel eftir atvikum en hann verður ef til vill yfir nóttina á spítalanum í eftirliti.

Maðurinn er búinn að fara í sneiðmynd og var hún eðlileg, að sögn læknis. Maðurinn er með mar og skurð á höfði og er sem fyrr segir á batavegi.

Fjallað var um málið á mbl.is í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert