Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, mun samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leggja til að Sigríður J. Friðjónsdóttir verði skipuð saksóknari í máli Geirs H. Haarde fyrir landsdómi og Helgi Magnús Gunnarsson skipaður henni til vara.
Þingmannanefnd Atla Gíslasonar mun svo leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis en nefndin fundar kl. 10 í dag þar sem búist er við að Lilja Rafney kynni tillögu sína. Búist er við knöppum fundi og að meirihluti nefndarinnar samþykki tillögurnar.
Sigríður J. Friðjónsdóttir er aðstoðarríkissaksóknari en Helgi Magnús Gunnarsson er saksóknari efnahagsbrota hjá ríkislögreglustjóra.