SP-Fjármögnun hefur lokið við fyrsta áfanga endurútreiknings gengistryggðra bílalána og kaupleigusamninga. Í fyrsta áfanga eru samningar þar sem einn og sami skuldari hefur verið frá útgáfudegi samnings.
Fram kemur á vef SP-Fjármögnunar að í dag verði póstlagðir
endurútreikningar vegna tæplega 7.000 samninga sem ættu að berast
viðskiptavinum félagsins á næstu dögum.
Þá segir að viðskiptavinir SP-Fjármögnunar, sem séu í ofangreindum hópi, geti á morgun föstudag
skoðað endurútreikninga sinna lána á www.sp.is.