Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir að það komi til greina að endurskoða niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu ef betri tillögur komi fram. Hann bíði nú eftir tillögum frá forstjórum þeirra heilbrigðisstofnana sem lentu undir hnífnum.
Þá segir forsætisráðherra mögulegt að endurskoða niðurskurð barnabóta.