Mótmælendur á samstöðufundi sem haldinn var á bökkum Ölfusár síðdegis í dag lokuðu fyrir umferð á Ölfusárbrú í lok fundarins. Var brúnni lokað í um það bil 15 mínútur.
Hátt í þúsund manns voru á fundinum en þar var mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði á fjárlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Á sama tíma funduðu sveitarstjórnarmenn með heilbrigðisráðherra og þingmönnum á veitingastaðnum Riverside við árbakkann.
Fram kemur á vef Sunnlenska, að mótmælin fóru friðsamlega fram enda ítrekað í fundarboði að um samstöðufund væri að ræða en ekki hávaðasöm mótmæli. Lögreglan var á staðnum en hafði engin afskipti af mótmælendunum.
Til fundarins var boðað af verkalýðsfélögum og fleiri félagasamtökum á Suðurlandi.