Meirihluti eða 51,7% þeirra sem tóku afstöðu, vill semja við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi eins og lagt er til í svokallaðri samningaleið.
Þetta er niðurstaða könnunar sem fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, vann fyrir LÍÚ dagana 5. -8. október.
Spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur hljóðaði þannig: „Meirihluti starfshóps, sem sjávarútvegsráðherra skipaði til þess að endurskoða lög um stjórn fiskveiða, lagði í byrjun september 2010 til að farin yrði svokölluð samningaleið í sjávarútvegi. Samningaleiðin byggir á því að ríkið geri samninga við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi. Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að þessi leið verði farin?"
Alls sögðust 51,7% vera mjög eða frekar hlynntir þessari leið en 48,3% sögðust mjög eða frekar andvíg því að hún væri farin. Svör fengust frá 830 manns en 39% svarenda tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.