Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, svaraði að bragði, þegar hann var spurður hvernig hann hygðist stöðva leikmenn á borð við Ronaldo og Nani, að hann hefði helst viljað svipta þá vegabréfinu.
Íslendingar mæta Portúgölum á Laugardalsvelli á morgun. Blaðamannafundur fyrir leik Íslands og Portúgal var haldinn síðdegis í dag og Mbl sjónvarp fylgdist með.