Dýpkunarskipið Perla vinnur nú að dýpkun Landeyjahafnar. Herjólfur hefur ekki siglt í Landeyjahöfn síðan 28. september en höfnin var orðin of grunn vegna sandburðar. Dýpkunarskipið Perla gat hins vegar ekki hafið dýpkun um leið þar sem skipið var í viðgerð í Hafnarfirði. Ekki liggur fyrir hversu langan tíma dýpkun hafnarinnar mun taka en síðast þegar höfnin lokaði vegna sandburðar tók fjóra daga að dýpka hana.