Eva Joly hefur tekið undir áskorun Bjarkar Guðmundsdóttur á íslensk stjórnvöld um að þau komi í veg fyrir sölu á HS Orku til Magma Energy.
Hefur verið boðað til blaðamannafundar á morgun þar sem Eva og Björk munu sitja fyrir svörum ásamt Jóni Þórissyni og Oddnýju Eir Ævarsdóttur.
Um 20.000 Íslendingar hafa skrifað undir áskorunina á vefnum orkuaudlindir.is.