Mótmæli við Stjórnarráðshúsið

Mótmælendur við Stjórnarráðshúsið.
Mótmælendur við Stjórnarráðshúsið. mbl.is/Júlíus

Lögreglan hefur girt af Stjórnarráðshúsið vegna mótmæla sem eru að hefjast. U.þ.b. tuttugu tunnum hefur verið komið þar fyrir til að berja á en ríkisstjórnin situr nú á fundi sínum í Stjórnarráðshúsinu. Boðað var til mótmælanna undir yfirskriftinni „tunnum ríkisstjórnina.“

Húsið er girt af með lögregluborða en tólf lögreglumenn eru á svæðinu. Á annan tug mótmælenda eru nú fyrir framan húsið og berja á tunnur.

Mótmælendur.
Mótmælendur. mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert