Fundur sviðs starfsmanna hjá ríki og sveitarfélagum, sem eru innan Starfsgreinasambands Íslands, krefst þess að stjórnvöld taki til endurskoðunar tillögur um stórfelldan niðurskurð til einstakra heilbrigðisstofnana. Segir í ályktun að „sumar tillögurnar verða þó ekki túlkaðar öðru vísi en að um hrein skemmdarverk sé að ræða.“
Í gær var fundað um undirbúning kjarasamninga þar sem farið var yfir efnahagsstöðuna, kjaramálin og væntanlegan flu á málefnum fatlaðra yfir til sveitarfélaganna, en kjarasamningarnir við ríki og sveitarfélög eru lausir 1. desember n.k.
Á fundinum voru m.a. samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um málefni fatlaðra þar sem væntanlegum flutningi á málefnum þeirra yfir til sveitarfélaganna er fagnað. „Fundarmenn telja að það sé skref í rétta átt að færa ábyrgð á þjónustu, sem næst þeim sem þjónustunnar njóta“, segir þar.
Hins vegar var álytað um málefni heilbrigðisþjónustunnar þar sem segir að „félagsmenn SGS eru vel meðvitaðir um að niðurskurðar er þörf í ríkisrekstrinum, sumar tillögurnar verða þó ekki túlkaðar öðru vísi en að um hrein skemmdarverk sé að ræða. Engu er líkara en ákveðið hafi verið að leggja niður rekstur einstakra stofanna um alla framtíð. Nauðsynlegt er að því sé svarað af fullri hreinskilni hvort svo sé og heimamenn geti þá brugðist við í samræmi við það.“