Um sjöunda hverjum starfsmanni Orkuveitu Reykjavíkur verður sagt upp störfum á næstunni, að því er kom fram í fréttum Útvarpsins.
Til stendur að segja upp um 80 starfsmönnum af um 580 fyrir næstu mánaðamót og einnig verður ekki ráðið í stað þeirra, sem hætta störfum á næstunni fyrir aldurs sakir.
Að sögn Ríkisútvarpsins liggur ekki enn fyrir hvaða starfsmönnum verður sagt upp og ekki heldur á hvaða sviðum dregið verður saman í starfseminni.