„Ég er bjartsýnni en áður,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, eftir fund fulltrúa sveitarfélaga á Suðurnesjum, fyrirtækja, stjórnvalda o.fl. í morgun um stöðu álvers í Helguvík og orkuöflun vegna þess. Norðurál er nú reiðubúið að einbeita sér að fyrstu 3 áföngunum við byggingu álversins, sem eykur líkur á framgangi verkefnisins að sögn hans.
Að sögn Ásmundar hefur margt áunnist frá því iðnaðarráðherra boðaði aðila verkefnisins til fundar í lok ágúst en leitað hefur verið leiða til að ryðja fjölmörgum hindrunum úr vegi. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum réði fyrir nokkru Runólf Ágústsson sem verkefnisstjóra til að vinna að framgangi álvers í Helguvík og samræma vinnuna og segir Ásmundur að það hafi greinilega gefist vel.
Ásmundur segir að margar jákvæðar upplýsingar hafi komið fram á fundinum. Skipulagsmál sveitarfélaganna á Reykjanesi, sem hafa flækt málið, eru nú að komast fyrir vind, að sögn hans. Jákvæðar upplýsingar liggi líka fyrir um orkukosti á Reykjanesi.
Að sögn hans er mjög ánægjulegt að Norðurál skuli nú vera tilbúið að einbeita sér að því að ljúka fyrstu þremur áföngunum við byggingu álvers í Helguvík í stað þess að setja fram kröfur um fjóra áfanga. Auðveldara sé að tryggja álverinu raforku en orkuþörfin eftir að fyrstu þrír áfangar álversins í Helguvík verða að veruleika yrði um það bil 450 MW eða um 150 MW fyrir hvern áfanga.
Uppbyggingin gæti staðið yfir í sex til tíu ár. „Allan þann tíma erum við að tala um 2000 störf við þessa uppbyggingu. Það er því griðarlega mikilvægt að koma þessu verkefni í gang. Það er verkefni okkar núna. Ég er bjartsýnni eftir þennan fund en áður,“ segir Ásmundur.