Neytendastofa: Mikill verðmunur á hjólbörðum

mbl.is

Mikill verðmunur er á hjólbörðum og gildir það um allar stærðarflokka. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Neytendastofu en hún var gerð 7.-11. október sl. . Í úrtaki Neytendastofu  eru upplýsingar um verð hjá 28 fyrirtækjum. 

Mestur munur var á 17 tommu heilsárs hjólbörðum eða 146%. Það fyrirtæki sem oftast var með lægsta verðið er með tímabundið tilboð sem gildir til og með 15. október.  Tekið skal fram að margir af þeim aðilum sem tóku þátt eiga von á nýrri sendingu af hjólbörðum og geta verð þá breyst. 

Sjá könnunina hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert