Þau eru mörg athyglisverð heitin á félögum og fyrirtækjum sem tekin eru til gjaldþrotaskipta.
Í Lögbirtingablaðinu í gær er tilkynnt að Axarskaft ehf. í Súðavík hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Vestfjarða, sem kveðinn var upp 7. október sl. Kröfur í búið skal senda til skiptastjóra, Austurstræti 17, Reykjavík. Undir auglýsinguna ritar Flosi H. Sigurðsson lögfræðingur fyrir hönd Borgars Þórs Einarssonar hdl.