Engar upplýsingar fást um fyrirhugaðan fund sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar síðar í dag með fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna. Hvorki hafa verið veittar upplýsingar um það hvað til standi að ræða á fundinum né hvenær hann hefjist.
Marínó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, sagðist í samtali við Mbl.is ekki hafa heimild til þess að gefa upp hvenær fundurinn færi fram og sömu svör hafa fengist hjá talsmönnum ríkisstjórnarinnar.