Jólaskreytingarnar eru komnar upp í IKEA

Jólaksreytingar komnar upp í IKEA.
Jólaksreytingar komnar upp í IKEA. mbl.is/Kristinn

Enda þótt rúmlega tveir mánuðir séu til jóla sjást þess þegar merki að hátíð fari að höndum.

Í verslun IKEA í Garðabænum eru jólatré komin víða upp og ungur snáði sem þar var á ferðinni í gær, Björgvin Brimi, sýndi einu hinna fagurlega skreyttu trjáa mikinn áhuga.

„Við setjum yfirleitt upp jólaskreytingar snemma í október og það mælist vel fyrir. Þetta lýsir og lífgar upp,“ segir Stefán Dagsson, vörustjóri IKEA á Íslandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert