Lúðvík á þing í fyrsta skipti

Lúðvík Geirsson.
Lúðvík Geirsson.

Lúðvík Geirsson varaþingmaður Samfylkingarinnar situr sinn fyrsta þingfund á Alþingi í dag fyrir Magnús Orra Schram 11. þingmann Suðvesturkjördæmis. Lúðvík, sem skipaði  fimmta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í kjördæminu,  verður á þingi í 2 vikur þar sem Magnús Orri er í launalausu leyfi.

Þetta er í fyrsta sinn sem Lúðvík tekur sæti á Alþingi en hann var bæjarstjóri í Hafnarfirði 2002-2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert