Kona gekk berserksgang í heimahúsi á Akranesi aðfararnótt laugardags. Að sögn lögreglu var konan gestkomandi á staðnum þegar á hana rann æði.
Lögreglan segir, að þegar lögreglumenn bar að garði hafði konunni runnið mesti móðurinn og hún falið sig undir rúmi. Hvorki konan eða húsráðandi kunnu á þessu skýringar. Hann hafði læst sig inni á baðherbergi á meðan lætin stóðu yfir.
Íbúðin var illa útleikin eða eins og segir í lögregluskýrslu um málið: „Íbúðin var gjörsamlega í rúst“. Lögreglan segir, að það hafi þó ekki breytt því, að húsráðandi bauð konuna velkomna til baka að morgni eftir að hún hafði sofið úr sér í fangageymslu. Ekki sé búist við því að hann hafi uppi kröfur vegna tjónsins.
Þá var farið inn í ólæstan bílskúr á Akranesi í síðustu viku og þaðan stolið nokkrum lambalærum ásamt einhverjum munum.
Lögreglumenn renndi strax í grun hver þarna hafði verið á ferð og tók hús á viðkomandi. Lærin og annað, sem tekið var í skúrnum, endurheimtist.